Sæl veriði, það líður alltaf voða langur tími hjá mér milli blogga,
liggur við að ég fari alveg að gefast upp á þessu! en jæja ætla
alla vegna að hripa einhverju hérna niður, ykkur til styttingar í
tímum

Helgin er búin að vera ótrúlega fín, að vísu frekar
draslaraleg samt, en það er afsökun fyrir því

En þannig er mál
með vexti að við systurnar vorum að fá nýja eldhúsinréttingu í
íbúina okkar hérna í bænum.mSvo að strax eftir skóla á fimmtudaginn
var farið í það að tæma eldhúsið, ótrúlegt hvað það var mikið í því
hélt að það myndi aldrei tæmast, að því loknu var farið og kíkt
aðeins niðrá Café Viktor eins og svo marga aðra fimmtudaga

Seinni
part föstudaginn kom svo vöubíllinn með innréttinguna. og rétt
eftir kvöldmat komu mamma, pabbi, afi, Hera og Dong í bæinn til
okkar þar sem mamma, pabbi og afi ætluðu að hjálpa okkur að setja
hana upp...humm veit ekki með hjálpa okkur þar sem við leifðum þeim
bara svona nokkurnveginn að sjá um þetta. vorum að brjóta niður
flísar af veggjunum og rífa inréttinguna niðru þangað til að verða
kl.1. Voru eflaust ekki vinsælasta fólkið í blokkinn með öll þessi
læti

hehe en fólkið hliðiná fyrirgaf okkur þetta alveg

Laugardaginn mætti ég svo galvölsk í vinnuna, og dííssesssss hvað
íslendingar kunna ekki að ganga um búðir hvað þá á útsölum veit
ekki hvað ég sá marga bara henda fötunum í gólfið, eða taka flíkina
af herðatréinu sem það ætlaði að fá og henda þá herðatréinu í
gólfið!!!

Þetta er eitthvað sem að þarf að kenna
íslendingum!!!! vorum þarna í tæpa 2 klukkutíma að ganga frá eftir
lokun, og þá var okkur hleypt heim, en veit að það voru einhverjar
sem að voru þarna eitthvað langt fram eftir að taka til!!!iss

Á
sunnudaginn var ég svo beðin um að fara með Heru, Dong og Anítu út
að borða (veit ekki hvort að þetta sé verið að segja mér eitthvað
um hæfni mína í að setja saman inréttinguna

) kíktum svo í Perluna
til að sína Dong, og svo var skellt sér í bíó með þau. Um kvöldið
var svo matarboð hjá línu frænku og co

Enn önnur vikan að byrja, þetta flígur áfram, áður en maður veit
af er komin aftur helgi. ekkert til að kvarta undan svosem

jæja
ætla að hætta þessu blaðri, og fara að fá mér 1944 þar sem að nýja
eldavélin er ekki komin og ég ein heima

-Sara Dögg-